Filed under: 1
Var að borga leiguna mína á vistinni um daginn þegar einn starfsmaðurinn spyr hvort mig langi að fara í viðtal hjá BBC. Kom í ljós að það var BBC crew á vistinni að gera smá heimildarmynd um Haruki Murakami (bjó á vistinni í gamla daga) og vantaði útlending til að commenta eitthvað fallegt. Benti þeim að tala frekar við Daryl vin minn, sem er sérlega fróður um kauða. Soldið fyndið að þeir myndi helling á vistinni sem fékk frekar slæma útreið í Norwegian Wood. Hlustaði á viðtalið, ótrúlega leiðandi spurningar. Hlakka til að sjá útkomuna í maí.
Fórum svo í smá kveðju-hádegismat nokkur saman því Daryl er að fara eftir viku. Skelltum í tveggja stjörnu Michelin hádegismat. Það var gott.
Á veitingarstaðnum vildi eigandinn endilega láta Röggu sitja á stól fyrir framan okkur. Gerir það að verkum að þetta lítur út eins og fyrrverandi eiginmannaklúbburinn hennar Röggu. Gott stöff.
Filed under: 1
Sló til og keypti mér sjónvarp í vikunni. Ekki seinna vænna, næstum heilt sjónvarpslaust ár. Skrapp útí búð og daginn eftir…bamm, heimsending og allt tengt fyrir mann. Planið er að massa smá japönsku í mars og reyna að kom henni á skrið, svo maður sé nú ekki alltaf að bölva hvað maður sé lélegur.
Nokkrar stöðvar hér í Tokyo senda út frítt í háskerpu og ég ætla aldrei að horfa á venjulega útsendingu aftur, þó sérstaklega íþróttir. Nú er bara að redda sér Blue-ray spilara, kannski playstation, og þá er masterplanið fullkomið. Gott að þetta hallærislega diskastríð sé búið.
Filed under: 1
Stóð til að gera helling um helgina og vera svo með stórbrotið blogg á morgunn en allt fór í vaskinn. Búið að vera stormviðri alla helgina og öllu cancellað, hafnaboltaleikur sem ég ætlaði að horfa á og fleira gott verður því að bíða betra vloggs.
Joseph Stiglitz kom annars til Waseda í vikunni og hélt slakan fyrirlestur um galla alþjóðavæðingar, eitthvað smá rúnk til að maður kaupi bókina hans (virkaði í mínu tilfelli).
Við félagarnir vorum síðan eitthvað að ræða það hvað japanskir stjórnmálamenn eru búnir að vera litlausir eftir að Koizumi hætti í fyrra. Abe reyndist alger ræfill og ekki virðist nú taka betra við með nýja gaurinn, Fukuda. Klára á skemmtilegri sögu um ráðherran sem Koizumi tók við af, Yoshiro Mori.
Sagan segir Mori hafi verið sérlega slakur í ensku en viljað ganga í augun á Bill Clinton þegar hann kæmi í heimsókn til Japan. Mori hafi því lagt sérlega hart að sér og lært nokkra grundvallar frasa. “How are you?” , “…fine and you?” og fleira í þeim dúr. Þegar loksins kemur að því að hitta Clinton, tekur Mori í höndina á honum og segir : “WHO are you?”. Clinton fipast eitthvað en tekur þessu sem góðu gríni og segir :”I am Hillary´s husband and you?”. Sem Mori svaraði að bragði “Me too!”
Tek samt Koizumi hvenær sem er, ég meina tékkiði á vídjóinu (gott þegar hann klessir á pottablómið og allir stressast upp í kringum hann). Fór strax að hugsa um GOB úr Arrested Development.
Filed under: 1
Í dag var haldið uppá 125 ára afmæli Waseda-háskóla. Heljarinnar húllumhæ með skrúðgöngum og látum í gangi í allan dag. 125 ár er víst merkilegt fyrir þær sakir að stofnandi skólans vildi meina að 125 ár væri hinn fullkomni aldur til að deyja. Sjálfur dó hann 84 ára að aldri.
Lifum lengi og döfnum, 125 er víst gott ár!
Filed under: 1
Stóð ekki til að vera með eitthvað neytendablogg en mér fannst ég tilneyddur. Fór með tvær skyrtur í hreinsun til eldri manns sem rekur litla fatahreinsun rétt hjá skólanum (styðja litla manninn). Borgaði 400 japönsk yen, sem gera rúmar 200 íslenskar krónur og fékk þær til baka eins og nýjar. Stífpressaðar, pakkaðar inn í plast, með litlum pappaslaufum undir krögunum og svo borði með slaufu utan um allt draslið, bókstaflega eins og nýjar (ef ekki nýrri).
Ég man nú ekki hvað ég borgaði seinast fyrir hreinsun á skyrtu heima en ég athugaði verðlistann hjá Kjól og Hvítu og þar hefði ég þurft að borga 1120 íslenskar krónur fyrir hreinsunina. Ég ætla nú seint að þykjast vita mikið um sparnað en mér fannst þetta vera heljarinnar munur, jafnvel hægt að kalla þetta OKUR. Ef þið viljið láta hreinsa skyrtur, sendið þær bara til Japan, gæti borgað sig ef þið sendið nokkur hundruð stykki.
Filed under: 1
Skólinn byrjaði í dag eftir tveggja mánaða frí. Feginn að loksins sé allt komið á skrið, þarf að snúa sólarhringnum aftur við og rembast við að vakna snemma næstu daga. Sjáum til hvernig það gengur. Annars fer þessi vika í að sitja og velja áfanga.
Er svo líka að hjálpa strákunum sem sjá um fótboltaliðið að recruita nýja gaura, eftir að helmingurinn fór heim í sumar. Hengja upp plaköt og svona, setja saman góða grúppu af fólki.
Svo er það komið á hreint , kem heim 17.des og verð í næstum þrjár vikur yfir jólin og Music Mind Reader, stefnir allt í góða keppni. Allir að koma heim frá útlöndum í fríið.
Var ánægður að sjá að Super Furries eru að koma eftir mánuð, nýja platan helvíti fín. Best er samt nýja myndbandið þar sem snillingurinn Matt Berry úr Darkplace og Snuff Box fer á kostum.
Filed under: Uncategorized
Kominn með hlutastarf í enskuskóla og verð að kenna þar nokkra tíma í viku.
Fyrsti dagurinn í gær og þá var mér kennt að búa til instant kaffi og útskýrt hvaða kaffibolla ég má nota og hverja ekki. Skólinn er í suðurhluta Shinjuku hverfis sem þýðir að ég þarf að vesenast í gegnum stærstu lestarstöðina í Tokyo til að komast. Tók mig um korter bara að komast útaf stöðinni í gær. Annars lítur þetta bara vel út og ekkert of strembið neitt held ég.
Allt svo að komast í gang , skólinn handan við hornið, fótboltinn að byrja og tími til að hrista af sér slenið. Núið er sannarlega betra en áður..guitar!
Filed under: Uncategorized
Kominn heim frá Hong Kong og hefði alveg til í að vera lengur. Súper nice borg! Náði samt að kovera alveg helling á stuttum tíma. Borðaði eins og svín, fór í kínverskt fótanudd sem ég hélt að myndi drepa mig og keypti svindl-rolex (sem hætti að virka á leiðinni heim).
Fann samt orginal Jordan sjöur, sem mig hefur langað í síðan ég átti par þegar ég var í grunnskóla. Það var það eina sem ég verslaði mér en annars léttilega hægt að versla af sér rassgatið í Hong Kong.
Á ennþá um þrjár vikur eftir þar til skólinn byrjar og reyni að nýta tímann til að gera eitthvað uppbyggilegt og jafnvel finna mér aukavinnu, kannski sem host-karl.
Filed under: Uncategorized
Hvunndagshetjan Aron Pálmi er loksins komin heim og til að fagna ætla ég til Hong Kong á miðvikudaginn. Þetta verður því seinasta vloggið í smá tíma.
Þýðir ekkert annað en að jetsetta aðeins eftir að maður er orðinn bonafide módel í Tokyo. Vorum að hangsa saman nokkrir krakkar í Yoyogi um daginn þegar við vorum beðin um að pósa fyrir skyrtulínu einhvers fata-merkis. Vissum í rauninni ekkert hvað var um að vera en slógum samt til. Á eftir að sjá myndirnar en vinkona mín var svo góð að senda mér sínar behind-the-scenes myndir.
Ef ykkur langar að bóka mig í verkefni , setjið bara comment. Verð heima um jólin , örugglega laus í nokkrar tökur. Í sundskýlu uppá jökli , eitthvað svoleiðis gott stöff.
