Blogg frá Tokyo


Sveheitt
July 22, 2008, 7:41 am
Filed under: 1

Rigningartímabilið búið en þrjátíu-plús tímabilið tekið við, ógeð.

Seinasti pappírinn þessa önnina alveg að klárast, gott að taka smá breik og skrifa boglogg. Kem svo heim í byrjun ágúst.

Fór á Star Wars ráðstefnu á laugardaginn með tveimur félögum, mikið fjör. Hittum fyrir Guðnýju Japana, sem komst meira að segja í blöðin. Stóð til að hitta Mark Hamill en það þurfti að borga pening til að hitta hann, þannig að við sögðum honum að fokka sér en hann heyrði það ekki. Svo var partí um kvöldið og karaókí fram á morgunn. Ekki mikið gert á sunnudaginn.

Þetta eru hausar úr The Vader Project, japanskir hönnuðir bættust í hóp þekktra hönnuða sem gerðu nýja Darth Vader hausa.


4 Comments so far
Leave a comment

Hæ sæti! Hlakka til að sjá þig í ágúst. Hér er hafið rigningartímabil sem verður vonandi búið þegar þú mætir. Koss frá KBB

Comment by Kristín Birna July 23, 2008 @ 12:56 am

Það má rigna mín vegna eins lengi og það sé ekki 35 stiga hiti. Kveðja frá sveittri Tokyo.

Comment by Halldór Elís July 23, 2008 @ 3:20 am

Jeijj bara nokkrir dagar í þig:)

Comment by Guðbjörg August 6, 2008 @ 11:31 pm

Hæ gæ, á ekkert að blogga? Komin með íbúð? Konu? Börn? Björn? Kv. Kristín Birna

Comment by Kristín Birna September 9, 2008 @ 12:00 am



Leave a comment
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>