Blogg frá Tokyo


Miðannarstuð
June 12, 2008, 1:22 pm
Filed under: 1

Mesta miðannarstuðinu lokið í skólanum , lauk seinasta fyrirlestrinum mínum í dag og fékk svo ritgerð í fésið að honum loknum.

Flestir örugglega frétt af viðbjóðnum í Akihabara um daginn, ekkert annað í sjónvarpinu hér núna. Verið að taka viðtöl við foreldra gaursins og vinnufélaga. “ja, hann var bara svona venjulegur gaur…”. Reyna að kenna tölvuleikjum og teiknimyndum um, væri réttara að benda á aðra hluti sem eru misgóðir í Japan.

Fór annars á boxkvöld um daginn að sjá gaur úr boxgymminu mínu slást. Rotaði gaurinn í annarri lotu. Gott gymm!

Svo er það Kit Kat Mango, blowing my mind right now!


6 Comments so far
Leave a comment

Hae saeti! Ekkert Kit kat mango takk,nu er bara verid ad fasta og ganga a birgdir likamans! Vid Ingunn erum i Pollandi eins og tu kannski veist. Er ad lata mig dreyma um ad koma til tin i haust, viltu reyna ad hafa ahrif med hugarorkunni ef tu nennir ad fa okkur i heimsokn!Kv. KBB

Comment by Kristin Binra June 14, 2008 @ 1:22 pm

Já , ég sendi góða strauma … og Kit Kat Mango með hugarorkunni. Láttu þér ekki bregða þegar þér finnst eins og það sé partí í munninum á þér og öllum boðið, það er bara Kit Kattið.

Comment by Halldór Elís June 14, 2008 @ 2:26 pm

Sæll Halldór Elís,

Ég rataði inn á síðuna fyrir tilviljun. Hún vakti einskæran áhuga minn þar sem ég var sjálfur í IR í Waseda (GSAPS)og bjó í Wakeijuku. Fattaði svo síðar að þú hafðir leitað ráða hjá mér áður en þú fórst út. Hvernig líkar þér skólinn?

Búinn að browsa í gegnum myndirnar á síðunni en sá bara einn sem ég þekki, Christian Aldunate frá Chile. Bið kærlega að heilsa honum. Ef menn eins og Ryan (USA), Mark (USA), Julian (Malasía), Tristan (Filipseyjum), Daniel (Brasilíu) og perúska tröllið hann Oscar eru þarna enn máttu skila kveðju frá mér. Og svo auðvitað Arnar í TIT.

Annars efast ég ekki um að þú skemmtir þér stórkostlega á þessum frábæru slóðum. Good times.

Ein spurning, er ítalski take away staðurinn enn handan við hornið? Ef svo er, þá mæli ég með spagettíinu með mozarella ostinum. Leitaði oft í hann þegar það var viðbjóður í mötuneytinu (sem var furðu oft)

kv. Maggi

Comment by Magnús Geir June 16, 2008 @ 3:46 pm

Sæll Magnús, takk fyrir commentið. Flestir af þessum gaurum eru farnir en Tristan er hér enn, skila kveðjunni til hans. Hverfið er mjög þægilegt, og jú ítalski staðurinn er hér enn.
Ánægður með skólann þó svo að maður sé misánægður stundum með suma áfangana.
Kveðja
Dóri

Comment by Halldór Elís June 17, 2008 @ 3:46 pm

Hey Dori,
still in Japan? Are you enjoying the hot summer ;-)

CU

Daniel

Comment by Daniel June 22, 2008 @ 2:34 pm

Hello Daniel
Yes, I am still in Japan and probably will be for some time and Yeah, the Heat is On in Japan. Terribly humid and sticky.

Dori

Comment by Halldór Elís June 23, 2008 @ 5:05 am



Leave a comment
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>