Blogg frá Tokyo


Rigning og ráðherrar
October 27, 2007, 12:46 pm
Filed under: 1

Stóð til að gera helling um helgina og vera svo með stórbrotið blogg á morgunn en allt fór í vaskinn. Búið að vera stormviðri alla helgina og öllu cancellað, hafnaboltaleikur sem ég ætlaði að horfa á og fleira gott verður því að bíða betra vloggs.

Joseph Stiglitz kom annars til Waseda í vikunni og hélt slakan fyrirlestur um galla alþjóðavæðingar, eitthvað smá rúnk til að maður kaupi bókina hans (virkaði í mínu tilfelli).

Við félagarnir vorum síðan eitthvað að ræða það hvað japanskir stjórnmálamenn eru búnir að vera litlausir eftir að Koizumi hætti í fyrra. Abe reyndist alger ræfill og ekki virðist nú taka betra við með nýja gaurinn, Fukuda. Klára á skemmtilegri sögu um ráðherran sem Koizumi tók við af, Yoshiro Mori.

Sagan segir Mori hafi verið sérlega slakur í ensku en viljað ganga í augun á Bill Clinton þegar hann kæmi í heimsókn til Japan. Mori hafi því lagt sérlega hart að sér og lært nokkra grundvallar frasa. “How are you?” , “…fine and you?” og fleira í þeim dúr. Þegar loksins kemur að því að hitta Clinton, tekur Mori í höndina á honum og segir : “WHO are you?”. Clinton fipast eitthvað en tekur þessu sem góðu gríni og segir :”I am Hillary´s husband and you?”. Sem Mori svaraði að bragði “Me too!”

Tek samt Koizumi hvenær sem er, ég meina tékkiði á vídjóinu (gott þegar hann klessir á pottablómið og allir stressast upp í kringum hann). Fór strax að hugsa um GOB úr Arrested Development.


3 Comments so far
Leave a comment

hahaha mig minnir einmitt ad thad hafi verid islenskur gaur sem ad hannadi thetta farartaeki… man samt ekki hvad thad heitir.

Comment by thorunn October 28, 2007 @ 1:16 pm

Græjan heitir Segway og það var einhver Kani sem hannaði það. Við getum samt sagt að það hafi verið Íslendingur.

Comment by Dóri October 29, 2007 @ 2:52 am

Ok thegar eg segi islendingur meina eg VESTUR-Islendingur hahahaha langt langt langt aftur i aettir!

Comment by thorunn October 30, 2007 @ 11:05 pm



Leave a comment
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>