Blogg frá Tokyo


Technosuð
June 29, 2008, 7:33 am
Filed under: 1

Með suð í eyrunum sit ég og skrifa endalaust. Fór á technokvöld sem vinur minn stóð fyrir í gær á litlum klúbbi í Shibuya. Hef ekki verið með svona mikið suð eftir hörðustu rokktónleika.

Sat blaðamannanámskeið allan laugardaginn , það var fjör. Notaði tækifærið og tók nýju subway línuna sem var að opna í Tokyo. Ekkert merkilegt við það nema það að Tadao Ando hannaði endastöðina.  Tók nokkar myndir.

Þetta er líkan af stöðinni, Á víst að vera eins og egg í laginu en ég skil ekki hvernig egg Ando borðar.

Þetta er út í öðrum endanum. Hér panorama mynd sem einhver gaur tók.

Svo er víst búið að taka fyrstu skóflustunguna að nýjum Tokyo turni, hryllilegt rusl í miðri borginni. Ando er að gera það líka, ekki að digga það.



Miðannarstuð
June 12, 2008, 1:22 pm
Filed under: 1

Mesta miðannarstuðinu lokið í skólanum , lauk seinasta fyrirlestrinum mínum í dag og fékk svo ritgerð í fésið að honum loknum.

Flestir örugglega frétt af viðbjóðnum í Akihabara um daginn, ekkert annað í sjónvarpinu hér núna. Verið að taka viðtöl við foreldra gaursins og vinnufélaga. “ja, hann var bara svona venjulegur gaur…”. Reyna að kenna tölvuleikjum og teiknimyndum um, væri réttara að benda á aðra hluti sem eru misgóðir í Japan.

Fór annars á boxkvöld um daginn að sjá gaur úr boxgymminu mínu slást. Rotaði gaurinn í annarri lotu. Gott gymm!

Svo er það Kit Kat Mango, blowing my mind right now!



Djúní
June 3, 2008, 6:38 am
Filed under: 1

Byrjaði að rigna í Tokyo á laugardag og verður örugglega rigning í tvær vikur eða svo. Ömurlegt rigningartímabil framundan! Annars er komin tentative dagsetning á Ísland í sumar, 11.-13.ágúst og svo stopp í rúmlega tvær vikur.Hressandi!

Flutti í nýtt herbergi á stúdentagarðinum og er kominn með dúndur útsýni yfir Four Seasons hótelgarðinn sem er við hliðina. Líka betra loft og færri moskítóflugur. Gæti jafnvel grísað á að sjá ríka fólkið drekka 2000 kr. kaffibollana sína í garðinum í sumar.

Sést aðeins í hótelið efst á myndinni

Svona var maður hress áður en byrjaði að rigna

Fréttamennska í Japan er stundum soldið siðlaus. Í dag var boðið uppá sjálfsmorð í beinni, í boði Nihon Terebi. Maður getur samt ekki verið væla, ætti að hafa verið auðvelt að slökkva á sjónvarpinu.



Púað á Hú
May 9, 2008, 6:33 am
Filed under: 1

Hú Djintá kom til Waseda í gær. Mikil öryggisgæsla í kílómetra radíus frá skólanum. Hú var víst helvíti hress og meira dipló en hallærisblaðran Jiang Zemín sem kom 1998 og gerði allt vitlaust. Var reyndar soldið spældur að sjá hvað mótmælin voru aumingjaleg. Ekkert táragas eða neitt.

Skiltin voru sum mjög góð, eins og þetta: Free Tibet in Waseda!

Heimsóknin var ekkert auglýst, af öryggisástæðum sagði skólinn. Pú á það!

Þessi lögga málaði lögguprikið sitt svo það liti út eins og geislasverð.



Handahófskenndur Föstudagur
May 2, 2008, 4:42 am
Filed under: 1

Var búinn að vera í þónokkurn tíma á stúdentagarðinum áður en ég tók eftir risa Soka Gakkai miðstöð við hliðina. Væri gaman að kíkja í partí einhvern tímann.

Svo er ég lengi búinn að reyna að ná mynd af kallinum sem fer reglulega með skjalbökuna sína út að labba… í rauðum skóm. Jibbí fyrir skjaldbökunni, hún er víst 12 ára.

Og þetta er sofandi leigubílstjóri, nuff said.



…dangerous!
April 24, 2008, 12:01 pm
Filed under: 1

Skólinn byrjaði í seinustu viku, lítur bara vel út. Verður sæmilega strembin önn og nóg að lesa. Hér koma svo tvær myndir úr símanum. Hressir fánagaurar í skólanum og kennslustofan mín IPC, þar sem ég kenni.

Búinn að vera lengi skotinn í öllu sem viðkemur Showa tímabilinu í Japan. Tónlistin er þar engin undantekning. Gott band , Barbee Boys (ca.1985) og flottur gæsahúðar-saxafónn.



Myndir
April 13, 2008, 3:31 am
Filed under: 1

Nokkrar myndir úr símanum. Reyni að gera þetta reglulega, sérstaklega ef ég er latur að skrifa.



Slabgöff
March 18, 2008, 1:31 pm
Filed under: 1

Var að borga leiguna mína á vistinni um daginn þegar einn starfsmaðurinn spyr hvort mig langi að fara í viðtal hjá BBC. Kom í ljós að það var BBC crew á vistinni að gera smá heimildarmynd um Haruki Murakami (bjó á vistinni í gamla daga) og vantaði útlending til að commenta eitthvað fallegt. Benti þeim að tala frekar við Daryl vin minn, sem er sérlega fróður um kauða. Soldið fyndið að þeir myndi helling á vistinni sem fékk frekar slæma útreið í Norwegian Wood. Hlustaði á viðtalið, ótrúlega leiðandi spurningar. Hlakka til að sjá útkomuna í maí.

Fórum svo í smá kveðju-hádegismat nokkur saman því Daryl er að fara eftir viku. Skelltum í tveggja stjörnu Michelin hádegismat. Það var gott.

Á veitingarstaðnum vildi eigandinn endilega láta Röggu sitja á stól fyrir framan okkur. Gerir það að verkum að þetta lítur út eins og fyrrverandi eiginmannaklúbburinn hennar Röggu. Gott stöff.

img_4664.jpg  all-four-of-us-after-the-meal.jpg



HD life
February 28, 2008, 9:41 am
Filed under: 1

Sló til og keypti mér sjónvarp í vikunni. Ekki seinna vænna, næstum heilt sjónvarpslaust ár. Skrapp útí búð og daginn eftir…bamm, heimsending og allt tengt fyrir mann. Planið er að massa smá japönsku í mars og reyna að kom henni á skrið, svo maður sé nú ekki alltaf að bölva hvað maður sé lélegur.

Nokkrar stöðvar hér í Tokyo senda út frítt í háskerpu og ég ætla aldrei að horfa á venjulega útsendingu aftur, þó sérstaklega íþróttir. Nú er bara að redda sér Blue-ray spilara, kannski playstation, og þá er masterplanið fullkomið. Gott að þetta hallærislega diskastríð sé búið.

img_4658.jpg



Rigning og ráðherrar
October 27, 2007, 12:46 pm
Filed under: 1

Stóð til að gera helling um helgina og vera svo með stórbrotið blogg á morgunn en allt fór í vaskinn. Búið að vera stormviðri alla helgina og öllu cancellað, hafnaboltaleikur sem ég ætlaði að horfa á og fleira gott verður því að bíða betra vloggs.

Joseph Stiglitz kom annars til Waseda í vikunni og hélt slakan fyrirlestur um galla alþjóðavæðingar, eitthvað smá rúnk til að maður kaupi bókina hans (virkaði í mínu tilfelli).

Við félagarnir vorum síðan eitthvað að ræða það hvað japanskir stjórnmálamenn eru búnir að vera litlausir eftir að Koizumi hætti í fyrra. Abe reyndist alger ræfill og ekki virðist nú taka betra við með nýja gaurinn, Fukuda. Klára á skemmtilegri sögu um ráðherran sem Koizumi tók við af, Yoshiro Mori.

Sagan segir Mori hafi verið sérlega slakur í ensku en viljað ganga í augun á Bill Clinton þegar hann kæmi í heimsókn til Japan. Mori hafi því lagt sérlega hart að sér og lært nokkra grundvallar frasa. “How are you?” , “…fine and you?” og fleira í þeim dúr. Þegar loksins kemur að því að hitta Clinton, tekur Mori í höndina á honum og segir : “WHO are you?”. Clinton fipast eitthvað en tekur þessu sem góðu gríni og segir :”I am Hillary´s husband and you?”. Sem Mori svaraði að bragði “Me too!”

Tek samt Koizumi hvenær sem er, ég meina tékkiði á vídjóinu (gott þegar hann klessir á pottablómið og allir stressast upp í kringum hann). Fór strax að hugsa um GOB úr Arrested Development.